
Skrifað af: Guðmundur Freyr Jónsson Miðvikudagur, 17. ágúst 2005 20:32
Ég gekk á Snæfellsjökul með 2 félögum mínum laugardaginn 13. ágúst. Það var enginn snjór neðst á jöklinum, aðeins sprunginn ís og vatnslækir niður hann. Veðrið var kyrrt, hlýtt og þurrt, en mikil þoka og ekki mikið útsýni vegna skyggnis. En þetta var samtsemáður mjög gaman og hressandi. ég smelli hér með inn nokkrum myndum.





