Borði

Alpar 2005

Ís og bjór var það eina sem afrekað var í þessari heimsókn til cham. Það kítlaði nú samt egóið að horfa á fjöllin og láta sig dreyma um skemmtilegar leiðir. Það er víst búið að vera fjölmennt á Blankin í sumar. Ég hef heyrt að milli 10 og 20 íslendingar hafi rölt upp á hann. Sumir jafnvel fengið þyrlufar niður aftur. Túristarúnturinn er víst að verða Hnjúkurinn, Kilimanjaro, Mt. Blanck og svo Elbrus. Spurning hvað fer svo á vinsældarlistan þegar liðið er búið með þennan lista. Það er af sem áður var þegar ekki mátti reima skóna til að það teldist frétt. Svona er lífið.