
Skrifað af: Smári Stefánsson Sunnudagur, 10. júlí 2005 17:22

Þá er fyrsta Glerárdalshringnum, sem á að verða að árlegum viðburði lokið. 42 hófu gönguna sem þótti mjög erfið. Leiðin sem er um 45 km. og inniheldur 27 toppa var mjög strembin og voru menn mis ónýtir hér og þar á leiðinni og einhverjir heltust úr lestinni á misjöfnum stöðum þar sem hægt var að komast niður. Að lokum eftir 18 klst. og 45 mín. kom fyrsti maður niður og korteri seinna koma sex aðrir. Ég hef enn ekki fengið fréttir af því hversu margir kláruðu hringinn eða hvernig gekk að öðru leiti.






