Borði

Hvítasunna 2005

"Ormurinn langi" var hann kallaður, hópur Ferðafélagsins sem liðaðist upp hlíðar Öræfajökuls með stefnuna á hæsta tind landsins. 90 manns + 7 fararstjórar. Það er ekkert grín að hafa hemil á viðlíka fjölda fólks þegar á fjallið er komið.
· Höfundur og ljósmyndir: Ágúst Þór

,,Ormurinn langi" var hann kallaður, hópur Ferðafélagsins sem liðaðist upp hlíðar Öræfajökuls með stefnuna á hæsta tind landsins. 90 manns + 7 fararstjórar. Það er ekkert grín að hafa hemil á viðlíka fjölda fólks þegar á fjallið er komið.
Varla hægt að halda skrílnum í línunni. Stemmarinn var góður og talstöðvar léttu verkin við skipulagninguna. Ingvar bauð uppá sprunguskoðun í ,,beinni" og aðra fræðslu. Ætli skilaboð helgarinnar hafi ekki verið á heimleiðinni þegar hann var að gjamma eitthvað í stöðina ,,...já við erum á brúninni og förum að koma að...#pomp#..æ datt oní smá sprungu... Þetta var sprunga í boði Ingvars..." En veðrið, sjitt hvað það var heitt, glampandi sól og hæg gola. Enda fékk maður að finna fyrir því. Þó ég hafi klínt á mig einhverju sólarvarnargumsi þá skaðbrann ég á vörunum. Ég væri til í að sjá þá sem báru ekkert á sig!!! HA Villý?? En svo var haldið á Hnappavelli og menn klifruðu eins og óðir væru, nema ég. Ég gekk um bölvandi og leit út eins og sviðahaus meðan aðrir höfðu gaman að gerðu óspart grín. Meira að segja Robbi, sem hafði varla efni á því með sinn eldrauða ,,Barbeque" háls. En hérna eru alla vega myndir. Njótið.

Elmar ræður sér ekki af kæti að vera á leið austur á vellina.,, hva, er að fara að rigna?áfram...... og áfram.,,OK, ekki stíga á línuna, ekki hafa slaka, ekki detta í sprungu, ekki pota í næsta mann með exinni, ekki labba of hratt, ekki segja lélega brandara og veriði svo öll vinir.Allir hressir.Þarna er hann svoJá það var svoldið heitt.Halli og Örlygur plotta heimsyfirráð.Svo kom Ómar og tók myndir á Frúnni.FrúinSiggi prílarGunni í Mónu Lísu.Elmar gríðarlega glaður úti í Salthöfða.Hvar er Gunni???