Skrifað af: Ágúst Þór Gunnlaugsson Fimmtudagur, 28. apríl 2005 22:34

Jamm, hér eru nokkrar myndir frá því í fyrra. Við fórum fimm norður á Akureyri að klifra um verslunarmannahelgi. Veðrið var bara skrambi gott og var klifrað á þremur stöðum, í Munkaþverárgili, Kjarnaklettum og boulder inni í Eyjafirði.
Nenni ekki að lýsa því nákvæmlega en skoðuðum klettana fyrir ofan Kjarnaskóg með það í huga að leita að hugsanlegum sportleiðum. Það eru alveg möguleikar á fjölda leiða þó að við höfðum aðeins skoðað stærstu klettaþilin. Nýtt klettaklifursvæði???
Þó að menn hafi verið að klifra þarna í mörg ár, Palli Sveins klifraði 5.10 leið þarna í gamla daga sem kallast Indíáninn (nánar í hans síðu hérna á Ísalp). Bergið er sona la la gott en þó vel brúklegt á íslenskan mælikvarða.
Eitt kvöldið fórum við Siggi inn í fjörð og gripum í nokkur grettistök sem eru þar.









