
Skrifað af: Hilmar Ingimundarson Mánudagur, 06. desember 2004 22:53
Í lok Febrúar 2004 fórum ég og Gaui í víking til Ella og Kirsty í Noregi.
Við byrjuðum á því að leigja okkur bíl á Gardemoen flugvelli og fyrir valinu var ódýrasti farkosturinn sem var í boði, Rent A Wreck (www.rentawreck.com ) og mælum við hiklaust með því að gera það til að halda kostnaði í lágmarki.
Rjukan er eitt af vinsælustu ísklifursvæðum Norðmanna og ekki að ástæðulausu. Rjukan er í um 3 tíma akstri frá Oslo og er bærinn frægur síðan úr seinni heimstyrjöldinni þegar þjóðverjar hertóku dalinn og svo baráttu heimamanna við að ná svæðinu aftur (google er með öll svör við sögulegum staðreyndum um svæðið, ég ætla ekki að reyna að hafa það allt eftir). Verkfræðingurinn í hópnum var ekki síður spenntur f. virkjununum á svæðinu frekar en öllum ísnum.
Dalurinn skiptist uppí nokkur mismunandi svæði frá A uppí F ásamt einu skíðavæði sem er í meðallagi gott, fínt f. hvíldardaga.
Svæði A er efst í dalnum með feikinóg af stuttum leiðum af flestum gráðum. Frá bílastæðinu er stutt labb niður í dalinn og má búast við að hitta þar fyrir fjöldann af klifrurum. Þetta svæði minnti mig soldið á Hnappavelli þar sem maður gat labbað á milli leiða og klifrað margar stuttar leiðir á einum degi, mixaðar, boltaðar, eða hvað sem var.
Síðan var það svæði B sem er frekar stórt með fjöldann allann af tveggja til þriggja spanna leiðum. Auðvelt aðgengi niður í dalinn af bílastæðinu.
Okkur gafst ekki tími til að klifra á svæðum C-F, en þau bjóða uppá fjölspanna leiðir allt uppí 22 spanna leið sem er lengsta leiðin á svæðinu. Erfiðara er að nálgast þessar leiðir og komast úr þeim og þar sem dvöl okkar takmarkaðist við 4 daga gáfum við okkur ekki tíma í að skoða þau.
Hérna er góð heimasíða um svæðið sem segir flest allt það sem segja þarf og líka um leiðina SHIT HAPPENS ( http://www.sljus.lu.se/People/Struan/Climb/NordicIce/Rjukan.html )
Svona ferð þarf ekki að kosta nein ósköp, nú bjóða Flugleiðir fargjöld til Evrópu á 19.900 (jólatilboð), síðan er það bílaleigubíllinn um 3.500 kr. á dag + bensín og svo borguðum við 2.500 kr f. tveggja manna svefnherbergi sem við gistum 3 í með eldunarastöðu. Svo er alltaf hægt að tjalda á svæðinu til að halda kostnaði í lágmarki!!!
Vona bara að þessar upplýsingar komi að einhverju gagni. Mæli hiklaust með hópferð þangað í vetur, og ekki væri vitlaust að kíkja á Ísfestivalið þeirra sem er í byrjun Mars.
Enjoy Himmi
!!!!!















































