Borði

Gerðuberg

Fróðleiksmolar og lýsing á fjölda klifurleiða í Gerðubergi. Þar er einhver besti staður á landinu vilji menn prófa alvöru sprunguklifur með "hand jamming" og tilheyrandi. Myndaserían gefa góða mynd af aðstæðunum. Frábært framtak hjá Sigurði.
· Höfundur: Sigurður T Þórisson
· Myndir: Sigurður T Þórisson

Gerðuberg er tæpa 120km frá Reykjavík, á innanverðu Snæfellsnesi. Keyrið áleiðis í átt að Stykkishólmi (til vinstri á hringtorginu nyrst í Borgarnesi). Þegar komið er rétt framhjá Eldborg á Mýrunum (ca. 45km frá Borgarnesi), þá er skilti sem bendir til hægri að Gerðubergi og þá blasir stuðlabergshamarinn við.
Bestu leiðirnar eru í hæstu hömrunum fyrir miðju. Þar eru leiðir á bilinu kannski 7-12m eða svo og eru á bilinu ca. 5.5 og upp úr. Fyrir ofan nokkrar helstu leiðirnar eru boltar (ofan á stuðlunum) en þar sem þeir eru ekki er oftar en ekki hægt að koma einhverju dóti fyrir til að græja toppakkeri. Þar sem það er ekki í boði er málið að fara bara nógu helvíti langt upp á melinn, tylla sér og reyna að tryggja þann seinni. Fara bara nógu langt til að seinni dragi þig ekki fram af ef stansinn heldur ekki...  Einn boltinn er búinn sighring og er ágætt að hafa með 15-20m statiklínu til síga niður á þegar leið er lokið. Neðan leiðanna er sæmilega brött stölluð lyng/gras-brekka sem er yfirleitt þægileg en þó getur verið smá spól upp að sumum leiðanna.
Sunnan (vinstra) megin við frístandandi stuðulinn er annað sæmilega hátt belti, ca. 5-8m hátt kannski. Við prófuðum það ekki þannig að ég veit ekki hvort það eru einhverjar léttari leiðir þar. Við náðum ekki að smakka á nema á allra augljósustu línunum þennan daginn og hljóta að vera a.m.k. 10 sæmilegar leiðir sem við áttum eftir að prófa.
Mín eins dags reynsla úr Gerðubergi er eftirfarandi:
Leiðirnar eru almennt sæmilega erfiðar enda er þetta nánast alltaf alveg lóðrétt og lítið um stalla. Mér fannst leiðirnar skemmtilegri eftir því sem þær voru erfiðari en það er náttúrulega smekksatriði.
Léttustu leiðirnar eru þær sem bjóða upp á þægilega strompun en það er kannski ekki sérlega byrjendavænt í sjálfu sér. Erfiðu leiðirnar eru meira í nokkuð stífum handa- (t.d. leið 5 að neðan) og fingra-djömmum (leið 8 líklega), erfiðum strompunum (leið 6) og einstaka þunnum layback smurningi (leið 9).
Staðir fyrir tryggingar voru almennt mjög góðir og átti ég aldrei í vandræðum með að tryggja leiðir vel. Notaði allt mögulegt úr rakkinu: allar stærðir af vinum, allar stærðir af og hnetum og einnig hexur og tricam-a. Maður kemst líklega vel af með vini og hnetur en það er ekki verra að hafa t.d. hexur.
Mín skoðun er sú að Gerðuberg er ennþá betra en Stardalur ef menn eru að leita að 5.8 leiðum og hærra en ef menn vilja klassískar léttari leiðir þá er Stardalurinn líklega skemmtilegri.
Hér að neðan gefur að líta grófa lýsingu, gæðaeinkunn (í brosköllum frá 1-5) og persónulega erfiðleikagráðun á þeim leiðum sem við smökkuðum á (og einni í viðbót). Athugið að þetta eru ekki opinberar gráður á leiðunum (þar sem ég þekki þær ekki) heldur bara gróf gráðun sem gæti hjálpað mönnum að átta sig á aðstæðum þarna!

Leið 1:

Stutt leið bakvið frístandandi stuðulinn. Pínu þunn strompun, aðallega því hann er svo þröngur neðst. Gleikkar svo upp og þá fjölgar líka gripum til að brúka og allt verður léttara (2/5). 5.5

Leið 2:

Strompur milli stuðla, handasprunga til vinstri, offwidth milli stuðla og kletts sitt hvoru megin. Þokkalega skemmtileg leið (3/5). 5.6

Leið 3:

Stutt handasprunga. Stigið í stuðul til vinstri. Svolítið þunnt handadjamm fyrir miðju en nokk skemmtileg (2/5). 5.7/8

Leið 4:

Handasprunga til vinstri. Stigið í offwidth hægra megin og face til vinstri. Varúð, stór laus blokk ofarlega. Nokkuð skemmtileg (3/5). 5.7

Leið 5:

Þröngar hendur neðst með þunnum löppum á feisi og tádjammi í sprungu upp á litla syllu undir skoru. Léttist aðeiins þegar ofar dregur og er ca. 5.7/8 þegar komið er á syllu. Frábær leið með pínu snúinni byrjun (5/5)! 5.9

Leið 6:

Horn með handasprungu neðst sem gleikkar í offwidth ofar. Þunnar lappir og pínu strembin djömm framan af en verða þægilegri þegar ofar dregur. Mjög skemmtileg leið! (4/5) 5.8

Leið 7:

Stuttur strompur með þunnum saumum báðu megin (?). Byrjar ofan við nokkra stuðlastalla. Skítsæmileg leið með erfitt smurningsklifur neðst (1/5). 5.7/8

Leið 8:

Þunnir fingur neðst en gleikkar þegar ofar dregur. Á víst að vera erfiðust í miðjunni. Prófaði þessa ekki en mér fróðari menn á staðnum vildu meina að hún væri (engir broskallar enn) 5.11

Leið 9:

Layback á góðum fingrum framan af en þeir versna þegar ofar dregur en þá skána lappirnar eilítið. Strembin 5.10, jafnvel 11 segja menn. Topropaði þessa bara (þannig að ég veit ekki hvernig dótið í henni er) en gef henni mjög góða einkunn og t.d. (4/5) 5.10c/d

Ágúst bröltir upp leið 1 við frístandandi stuðulinn.Ágúst leiðir leið 2Gerðubergsklifrarar að störfum hjá leið 5 (?)Haukur að leiða snilldarleiðina (sem ég hef nefnt því frumlega nafni leið 5)Leið 6, mjög skemmtilegt hornÉg að toprópa leið 9, strembin fingrasprungaÁgúst leiðir leið 1Yfirlitsmynd yfir miðhluta Gerðubergs. Ef grannt er skoðað má sjá númer leiðanna ofan þeirra. Sést betur á næstu 2 myndum.Leiðir 1-3, vinstra megin við hæstu hamrana.Leiðir 4-9, vinstra megin og í hæstu hömrunum