Borði

Stardalur

Af síðum félaga... Fimmtudaginn 13. maí sl. var ákveðið að taka seinni partinn hátíðlega og drífa sig í stuðlabergsklifur á hinum fróma stað Stardal.
· Höfundur: Sigurður T Þórisson
· Myndir: Sigurður T Þórisson

Fimmtudaginn 13. maí sl. var ákveðið að taka seinni partinn hátíðlega og drífa sig í stuðlabergsklifur á hinum fróma stað Stardal. Fyrir þá sem ekki vita þá er Stardalur gríðarskemmtilegur stuðlabergsstapi rétt hjá Skálafelli. Keyrt er Mosfellsheiðina í átt að Þingvöllum og keyrt til norðurs inn afleggjarann að bænum Stardal. Þar er farið yfir brú og keyrt sunnan ár að hliði. Þar er skilti sem hótar öllu illu en mér skilst að bóndinn sé sáttur við að maður keyri að melnum sem er beint fyrir neðan klettana. Gengið er svo upp stikaðan stíg sem liggur undir skriðuna undir miðhömrunum.
Að þessu sinni fórum við í Mið-vesturhamrana, sem er fyrsta þilið vinstra megin við enda stígsins, um 20m vestan við stíginn. Leiðir á því svæði eru t.d. (frá hægri) 7-up 5.7 (handan við hornið), Lúsífer 5.8 (létt fyrir gráðuna), Skráman 5.8 (erfið fyrir gráðuna), Sveittir fingur 5.6 (mjög erfið fyrir gráðuna), Flögurnar 5.4, Stikan 5.5, Jaðar 5.7 (snúin og pínu tortryggð efst).
Alltént snilldarsvæði og ótrúlega stutt frá bænum (26km heiman frá mér á Kleppsveginum)!
Stardalurinn hefur verið sorglega nýttur undanfarin ár og er alveg undantekning að maður hittir einhverja þarna, hvort sem það er á góðvirðisdögum í miðri viku eða um helgar. Hvet alla til að nýta sér svæðið enda er þetta mjög byrjendavænt, léttar leiðir, góðar tryggingar oft á tíðum og oftast hægt að brölta upp fyrir og henda upp toppakkeri fyrir óvana. Maður kemst langt á hnetusetti ef maður ætlar að topprópa en vissara er að bæta við vinasetti ef ætluniner að leiða. Nokkrir slingar og prússíkhönk getur verið góð viðbót til að rigga toppakkeri til að tryggja seinni klifrarann.
Sjáumst í Stardal í sumar!

Albinóaskyrklessan (Danni) og Die Erdkatze (Ágúst)Ég í kamarstellingunni neðan við Jaðar (5.7) að bíða þess að mynda Ballzus (Gunna)Ballzus í góðum fíling í Flögunum (5.4)Drengurinn svífur alveg upp leiðina enda veðrið með besta móti þrátt fyrir ringingu fram að hádegi - allt skraufþurrt kl. 17:30Alveg að komast upp á brún. Bara einn stallur og smá haft eftirSéð vestur á FaxaflóannOg þau flugu hjá í snatri, já fuglarnir og sólin (söng ekki Katla María það?)...Jösta ekki orðinn hræddur ennþá sýnist mér  :)Ballzus gengur frá öðrum spottanumÁ meðan klifraði ég Lúsífer (5.8) með Danna og það var rífandi snilld. Komnir niður í bíl um 23:00 eða svo og heim hálftíma síðar.