
Skrifað af: Páll Sveinsson Laugardagur, 31. janúar 2004 23:54
Alltaf gaman að kíkja á eyjafjöllin. Við klifruðum línu 300 metrum austar en Paradísarheimt. Fína línu ca. 100 metra langa. Hún nær hinni frægu P5 gráðu vegna fyrstu metrana sem voru vel í fangið.
Annars var þetta klassik eyjafjallaklifur, bratt, blautt og í brakandi bíðu. Það sem er aftur á móti spennandi er næst leið við hliðina. Heldur brattari. Aðeins minni ís og helmingi lengri. Nær væntanlega ca. 200m í það heila.






