
Skrifað af: Sigurbjörn Gunnarsson - Böbbi Föstudagur, 24. janúar 2003 18:40
Dagana 14.16. mars verður hið árlega Telemarkfestival haldið í Hliðarfjalli á Akureyri.Helgin byrjar á stökkkeppni á föstudagskvöld með viðeigandi veitingum. Það er því um að gera að mæta snemma! Á laugardag og sunnudag takast sveiflumenn á í ýmsum greinum, svo sem hleypa brúnum og samhliða svigi. Kvöldmatur og skemmtun að hætti telemarkara verður á sínum stað á laugardagskvöld.
Nánari dagskrá og upplýsingar munu liggja fyrir fljótlega í febrúar.
Það er því ekki eftir neinu að bíða en að bóka íbúð fyrir Norðan og skella sér á skíði!!