
Skrifað af: Rúnar Óli Karlsson Föstudagur, 10. janúar 2003 16:16

Bandaríski framleiðandinn Cherie Silvera og ástralski útivistargarpurinn Eric Phillips (sjá ), sem hefur meðal annars gengið á Norðurpólinn, Suðurpólinn, Grænlandsjökul og yfir Patagoniu jökulinn, komu til landsins um daginn til að skoða aðstæður og leist vel á Ísafjörð og hlakka til að koma aftur þann 18. febrúar.
Í þættinum keppa 50 þátttakendur sem koma víða að úr Bandaríkjunum og fara meðal annars til Afríku og Costa Rica áður en þeir koma til Íslands. Þegar fólkið kemur hingað verður búið að fækka þátttakendum í níu manns. Það stendur til að láta fólkið taka þátt í daglegu lífi vestra og uppi eru hugmyndir um að senda menn á sjóinn, láta þá vinna á bóndabæ og fleira í þeim dúr.
Vonandi verður kominn snjór því þátttakendur munu taka með sér skíði og stunda ýmiskonar útivist meðan á dvöl þeirra stendur.
Fimm af þeim níu sem dvelja vestra munu að lokum reyna að ganga á hæsta fjall heims, Mount Everest.
Outdoor Life Network er mjög vinsæl sjónvarpsstöð meðal útivistarfólks í Bandaríkjunum og Kanada og ljóst að umfjöllun þar er af hinu góða fyrir ferðamennsku á landinu.
Hinir þættirnir tveir verða teknir í Skaftafelli og á Mýrdalsjökli.
Nánar á