
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir Föstudagur, 29. maí 2009 17:11

Jafet er einn af strákunum sem hefur verið alinn upp af Klifurhúsinu síðustu árin og er því ansi liðtækur í sportinu. Hann er helst í sportklifri og boulder og segir boulder skemmtilegast þar sem það er “minna vesen og meira klifur auk þess sem það eru fleiri möguleikar á boulderi á Íslandi en sportklifri”. Skemmtilegustu “probbarnir” í Jósefsdal segir hann vera Hallamálið, Draumadísina og Ekkert mál fyrir Jón Pál.
Nú er um að gera að arka í Klifurhúsið, splæsa í pésann sem kostar litlar 1.600 krónur og sannreyna hvort það reynist rétt.
Jafet, hvað kom til þess að þú ákvaðst að gera þennan leiðarvísi?
Mikill áhugi fyrir klifri held ég bara. Klifuríþróttin hefur verið að stækka hér á Íslandi ég vildi auka aðgengi fólks að klifri.
Nú er Jósefsdalur frekar nýfundinn og margar leiðanna nýjar – er mikið ófundið á þessu svæði?
Já, ekki spurning. Þetta var mikill sprengur hjá mér síðasta sumar. Ég notaði hvert tækifæri til að finna nýjar leiðir og afla upplýsinga um þær áður en veturinn skall á og ég vissi af nokkrum línum sem voru áhugaverðar. Nú þegar eru búnar að bætast við nokkrar nýjar leiðir.
En hvað með aðrar ósnertar gersemar – lumar þú á einhverjum leyndarmálum um klifursvæði á Íslandi?
Haha. Ég held að það séu nú frekar reynsluboltarnir. Stebbi [Stefán Smárason – annar höfunda Hnappavallahamra] var t.d. búinn að halda leyndu fyrir okkur klifrurunum alveg svakalega flottu svæði í mörg ár, en það er boulderklifursvæði í Sýrfellshrauni. Ég, ásamt fleirum fórum með honum um helgina að klifra. Mjög flott svæði!
Talandi um önnur klifursvæði á Íslandi? Vantar fleiri leiðarvísa og ætlar þú að halda áfram að leggja þitt af mörkum?
Ég er með plan um að gefa út boulder leiðarvísi af Hnappavöllum fljótlega í sumar. Ég er reyndar ekki einn í þessu lengur. Við erum farnir að vinna saman í þessu verkefni, ég og Elmar Orri. Gengur mjög vel. Einnig erum við að spá í að búa til boulder leiðarvísi um minni svæði í nágrenni Reykjavíkur.
Það er, held ég, óhætt að segja að þetta er útlitslega flottasti leiðarvísirinn sem hefur verið gerður á Íslandi, með glæsilegu ljósmyndum og skemmtilegri útlitshönnun. Átt þú allan heiðurinn af þessu? Var þetta mikil vinna?
Hehe. Ég byrjaði að skissa og koma með hugmyndir 2-3 árum áður en þessi leiðarvísir kom út og kunni þá ekkert á þau forrit sem ég þurfti að nota. Það fór hellings tími í þetta, en maður bara sleppir tölvuleikjum og minnkar sjónvarpsáhorf. Ég gat alltaf mætt í Klifurhúsið og ráðfært mig við fólkið þar og fékk vini til að fara yfir textann.
Varstu að reyna að ná einhverju sérstöku fram með leiðarvísinum? Einhverju nýju og öðru vísi? Notaðist þú við einhverjar fyrirmyndir við gerð hans?
Ég vildi auðvitað hafa hann flottan þannig að ég lagði mikla vinnu í að hanna útlitið. Ég skoðaði slatta af klifurleiðarvísum, gönguleiðarvísum og bókum til að safna saman hugmyndum. Helstu áhrifin koma þó frá mjög góðum boulder leiðarvísi af Chironico í Sviss.
Að lokum minnist Jafet á annað verkefni sem hann og Elmar eru að vinna að,
en það er heimasíðan . Markmið síðunnar er að vera samskiptaleið og upplýsingamiðill fyrir klifrara á Íslandi. Heimasíðan er á grunnstigi en verkefni sumarsins er að safna upplýsingum um klifursvæði víðs vegar um landið og gera þær aðgengilegar á vefnum. Spennandi verður að fylgjast með framvindu mála hjá þeim félögum á næstu mánuðum og miðað við frumraunina þá eiga klifrara landsins von á vel unnu verki frá Jafet og co.