Borði

Góð ferð í Gerðuberg

Veðrið lék við þátttakendur í Gerðubergsferð Ísalp sem fram fór fimmtudaginn 21. maí. Fimm ferskir klifrara mættu til að hrufla á sér hnúa og hnefa milli stuðlabergs stöplanna.


mynd: Björk Hauksdóttir

Veðrið lék við þátttakendur í Gerðubergsferð Ísalp sem fram fór fimmtudaginn 21. maí. Fimm ferskir klifrarar mættu til að hrufla á sér hnúa og hnefa milli stuðlabergs stöplanna.


Það var fríður flokkur klifrara sem renndi sér upp undir klettabeltið Gerðuberg á Snæfellsnesi að morgni Uppstigningardags. Eindregin blíðviðrisspá olli engum vonbrigðum því varla dró ský fyrir sólu allan daginn.

Stuðlabergsþilið í Gerðubergi er reisulegt og formfagurt, sérlega reglulegt og nær hæst um 15 metrum. Dagsskipunin var sprunguklifur milli stuðlanna, tækni sem sumir voru að prófa í fyrsta sinn. Nýlegur leiðarvísir Ísalp að svæðinu kom að góðum notum við að ákveða leiðir við allra hæfi.
Reynsla þátttakenda af sprunguklifri var æði misjöfn, enda er það tækni sem þarf dálitla slípun. Sumir reyndu fyrir sér í leiðslu með hnetum og vinum á meðan aðrir létu sér nægja að elta eða klifra í ofanvaði. Reynsluboltarnir í hópnum sáu til þess að allt væri tryggilega gert og aðstoðuðu við uppsetningu toppakkera.

Þó að nokkuð sæi á fingrum og handarbökum eftir daginn er ljóst að þetta stórskemmtilega klifursvæði hefur eignast nokkra nýja aðdáendur eftir daginn.

Fleiri myndir má sjá hér: http://picasaweb.google.com/bjorkh/GerUberg