
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir Miðvikudagur, 20. maí 2009 13:48

Á fyrra kvöldi ÍSALP voru sýndar fjölbreyttar myndir sem spönnuðu allt frá slackline ævintýrum, klettaklifri, baráttu Ian Parnell og Andy Kirkpatrick við Patagóníska tinda og skíðamennsku á ýmsum stöðum.
Seinna kvöldið verður ekki síðra en þar verður meðal annars sýnd ný íslensk skíðamynd.
Úrslit ljósmyndasamkeppni ÍSALP árið 2009 voru kunngjörð í gærkvöldi. Steig þar á stokk hinn knái ljósmyndari Thorsten Henn og kynnti vinningsmyndirnar. Valið var alls ekki auðvelt og því var ákveðið að veita bæði 1. og 2. verðlaun.
Verðlaun komu frá Beco, Skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins og útprentin voru í boði Thorstens Henn (www.image.is).
Þá gaf Prjónastofa Ásdísar Daggar veglega fjallahúfu.
Vinningshafarnir eru eftirfarandi:
Skíði:
1. verðlaun: Arnar Þór Emilsson
2. verðlaun: Arnar Þór Emilsson
Ísklifur:
1. verðlaun: Guðmundur Tómasson
2. verðlaun: Björgvin Hilmarsson
Mannlíf á fjöllum:
1. verðlaun: Jón Heiðar Rúnarsson
2. verðlaun: Berglind Aðalsteinsdóttir
Myndirnar verður hægt að skoða til bráðabirgða á eftirfarandi slóð, en þar er einnig að finna vinningsmyndir fyrra árs.
http://sveinborg.smugmug.com/Ljosmyndasamkeppni%20ISALP