Borði

Toppatryllingur

Helgina 1. til 3. maí stefndi Ísalp á toppatrylling. Stefnan var sett á Öræfin, þátttökuleysi og veðurspá settu þá strik í reikninginn.


mynd: Björk

Helgina 1. til 3. maí var stefnt á toppatrylling. Horft var til austurs nánar tiltekið Öræfin. Þar eru nokkrar ansi stórar brekku m.a. af Hnjúknum og Þverártindseggi. Um 7 manns stefndu á að koma með. Þegar leið á vikuna fór slæm veðurspá, meiðsli og aðrar annir að hefta fólk í bænum.
Úr varð að þrír Ísalparar fóru á Snæfellsnesið á laugardeginum og reyndu við Snæfellsjökul. Veðrið vildi þó ekki haga sér, rokið feykti stórum manni um koll og skyggni ekkert. Úr varð að snúið vað við þegar ca 200 m voru eftir á toppinn og skíðað niður í engu skyggni.
Á bakaleiðinni var komið við á einum bænum fyrir neðan jökulinn og nokkrum nýfæddum lömbum klappað.

Þó að ekkert hafi orðið úr toppatrylling þá er af og frá að skíðamenn landsins hafi pakkað skíðunum niður. Enn er nægur snjór og enn snjóar.
Endilega látið vita ef þið eruð á ferðinni og póstið um aðstæður.