Borði

Ljósmyndasamkeppni íSALP 2009

Nú fer að koma að árlegri ljósmyndasamkeppni. Hún verður með svipuðu sniði og í fyrra. Keppt verður í 3 flokkum. -Skíði -Ísklifur -Mannlíf á fjöllum Nánar um reglur og skilafrest er að finna í fréttinni. Úrslit verða kynnt á Banff fjallakvikmyndahátíðinni.


mynd: Berglind Aðalsteinsdóttir

Athugið að skilafrestur rennur út á miðnætti laugardaginn 18. apríl og verðlaunamyndir verða kynntar á Banff hátíðinni sem fer fram stuttu síðar.
Vinningsmyndir síðasta árs birtust í síðasta ársriti og má gera ráð fyrir að eins verði að farið í ár.

Reglur keppninnar:

- Myndum skal skila á jpeg sniði (.jpg)
- Upplausn myndar er frjáls en hafa skal í huga að hugsanlega fer mynd á prent og því er gott að upplausn sé að minnsta kosti 2481px X 1749px.
- Hvorki má bæta við hlutum úr öðrum myndum, teikna eða bæta inn texta á myndina.
- Heimilt er að laga minniháttar galla í myndum en samt sem áður er bannað að eyða, afrita, búa til eða færa þýðingarmikinn hluta myndarinnar. Mælt er með að þátttakendur taki fram allar breytingar sem gerðar eru á myndinni.
- Þátttakandi tiltekur í hvaða flokk myndin á að keppa.
* Ísklifur
* Skíði
* Mannlíf á fjöllum
- Hámarksfjöldi mynda á hvern þátttakanda eru 3 myndir í hverjum flokki, samtals 9 myndir sé tekið þátt í öllum flokkum.
- Myndin skal vera tekin á þessari vetrarvertíð og rennur skilafrestur út á miðnætti 18. Apríl.
- Myndir skulu sendast á veffangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
- Verðlaun verða veitt fyrir bestu mynd í hverjum flokki og verða þau tilkynnt á Banff kvikmyndahátíðinni.
- Ef spurningar vakna þá er hægt að hafa samband við Sveinborgu í síma 6957581