Borði

Skráning óhappa og slysa á fjöllum

Miðvikudaginn 11. mars sl. var haldið umræðukvöld um slys og öryggi á fjöllum. Markmiðið var einkum að hefja umræðu um þessi mál og fá fólk til að rifja upp atvik og segja frá svo aðrir megi læra af þeim. Stjórn Ísalp hefur hug á að fara út í að skrá óhappaatvik sem verða við fjallamennsku á Íslandi.


mynd: Björgvin Hilmarsson

Miðvikudaginn 11. mars sl. var haldið umræðukvöld um slys og öryggi á fjöllum. Þar voru ýmsir sem sögðu reynslusögur og voru m.a. sýndar myndir af snjóflóðum og afleiðingum þeirra. Mætingin var vonum framar og miklar umræður spunnust um þetta mikilvæga efni. Það er ljóst að margir luma á sögum um óhöpp og það er allra hagur að þessi atvik gleymist ekki heldur verði skráð.

Markmiðið var einkum að hefja umræðu um þessi mál og fá fólk til að rifja upp atvik og segja frá svo aðrir megi læra af þeim. Stjórn Ísalp hefur hug á að fara út í að skrá óhappaatvik sem verða við fjallamennsku hvers konar en hvernig sú skráning fer fram er ekki endanlega ákveðið. Líklegt er að á nýju vefsíðunni verði svæði þar sem fjallað verður um þessi mál auk þess sem skýrsla gæti birst í ársritinu.

Sem fyrsta skrefið í þessa átt vill stjórnin hér með biðja fólk að setjast niður og skrifa hjá sér lýsingu á þeim atvikum sem það kann að hafa vitneskju um og senda á stjórnina (stjorn[hjá]isalp.is). Gott er að halda til haga öllum upplýsingum sem geta varpað ljósi á aðdraganda og eftirmála óhapps eins og veður og aðrar aðstæður, fjölda ferðafélaga, fjarskipti, tími árs, hvað gerðist... hvers vegna o.s.frv. Oftast má draga einhverja ályktun af umræddu atviki eins og hvað hefði mátt betur fara, hvað má læra af því o.fl.

Augljóslega er mikill fengur af því að fá sem flestar frásagnir upp á yfirborðið, líka af eldri óhöppum. Því biðlum við einnig til þeirra eldri og reyndari sem hafa án efa frá ýmsu bitastæðu að segja frá fyrri tíð.

Öll umræða í þessa veru er af hinu góða og verður vonandi til þess að fólk hugsi meira um öryggi sitt og annarra í ferðum á fjöllum. Það að óhapp eigi sér stað á ekki að vera eitthvað til að skammast sín fyrir heldur ætti í raun að vera sjáfsagt fyrir hvern og einn að hugsa sem svo að þeirra atvik geti komið í veg fyrir óhapp hjá öðrum ef sagt er frá því.

Þegar eitthvað hefur komið upp á þá hafa menn stundum sagt frá því lauslega á spjallinu. Það er gott og um að gera að halda því áfram en svo í framhaldinu að skrá atvikið nánar eins og talað er um hér að ofan.