Borði

Telemarkfestival 2009

Nú er alveg að fara bresta á með Telemark festivali. Að venju eru skipuleggjendur í góðum tengslum við veðurguðina og hafa tryggt góðan skammt af snjókomu í vikunni. Við kynnum stolt traustasta styrktaraðila Telemarkfestivalsins, Fjallakofann og hvetjum alla til að kíkja á úrvalið hjá Dóra.


mynd: Sveinborg

Dagskráin er farin að taka á sig góða mynd og má sjá hana hér að neðan.

Nýbreytni er hópskíðun úr fjallinu sem endar í aprés-ski stemmningu við Gistiheimilið Glerá. Þar munu TAT-arar og Nashyrningar sjá um að skapa réttar aðstæður til skíðaskódans á borðum og eru gestir vinsamlega beðnir um að hafa á sér klink til útkoman verði réttum megin við núllið.
Aprés-ski að Glerá gerir það að verkum að telemarkarar geta einbeitt sér að því að leyfa sínum innri íþróttamanni að skína skært og sleppa sulli þar til á Glerá.

Hápunktur dagskrárinnar er samhliðasvigið á laugardeginum. Búast má við harðvítugri keppni enda margir harma að hefna frá síðasta ári.

Hóf verður haldið á Vélsmiðjunni og hvetjum við alla sem ætla vera með í matnum að skrá sig á umræðusíðum.


Dagskrá festivalsins

Föstudagur:

Skíðað af vild í púðrinu, nægur snjór og spáð snjókomu fram að næstu viku.
Unnið í því að fá að hafa skíðasvæðið opið lengur fram á kvöldið. Nánari fréttir er nær dregur.

Laugardagur:

kl. 10:00 - skíðað af vild í púðrinu og búningakeppni hefst
Kl. 13:00 - Samhliðasvig í Hjallabrautinni, keppt í kvenna og karlaflokki
- Samtímis verða Telemarkþrautir fyrir þá sem þora!
kl. 16:30 - Eftirskíðun - skíðað niður að gistiheimilinu Glerá, TAT-arar og Risaeðlur sjá um sína
kl. 20:00 - Telemarkhóf á Vélsmiðjunni - Matur og fjör, miðaverði stillt í hóf

Sunnudagur:
kl. 10:30 - Skíðað af vild í takt við hugarástand hvers og eins
kl. 16:00 - Hugað að heimferð