
Skrifað af: Björk Hauksdóttir Fimmtudagur, 05. febrúar 2009 11:10

1. Flogið er til Bíldudals alla daga nema laugardaga, brottför er frá Reykjavík kl. 10.30 og frá Bíldudal kl. 11.30 nema sunnudaga þá er brottför kl. 12.30 og 13.30. Sætafjöld er um 7 til 9. Stutt er frá flugvellinum á Háanesi til Bíldudals eða um 7 mín akstur, hægt að taka rútu eða sækja viðkomandi. Sjá nánar á www.ernir.is
2. Aka alla leið sem tekur um 5 til 6 tíma. Leiðin er oftast fær og henni haldið opinni svo framalega að ekki sé vont veður á hálsunum. Helsti farartálminn er Klettháls en upplýsingar eru um færð og veður á www.vegagerdin.is . Þegar komið er í Flókalund þarf að fara leiðina um Patreksfjörð til Bíldudals.
3. Aka í Stykkishólm og taka ferjuna yfir Breiðafjörð, komið að landi á Brjánslæk ekið þaðan til Bíldudals, Patreksfjarðarleiðina. Reykjavík Stykkishólmur er um tveir og hálfur tími. Með ferjunni yfir Breiðafjörð er um tveir og hálfur tími og frá Brjánslæk til Bíldudals rúmur klukkutími. Samtals rúmir fimm tímar. Ferjan Baldur fer frá Stykkishólmi kl. 15.00 og brottför frá Brjánslæk kl. 18.00 nema á laugardögum, þá er brottför kl. 11.00 frá Stykkishólmi og kl. 14.00 Sjá nánar á http://www.saeferdir.is