Borði

Afsláttur í Baldur

Jón Þórðarson verður gestgjafi Ísalpara á Bíldudal á meðan festivalið stendur yfir. Hann hefur talað við Sæferðir og fengið afslátt fyrir þá sem kjósa að slappa af í Baldri í staðin fyrir að keyra alla leiðina. Hægt er að nálgast upplýsingar um ferjuferðir hér: http://www.saeferdir.is/Forsida/FerjanBaldur/


mynd: Ísalp

Halló Ísalp!

Sæferðir, ferjan Baldur mun veita ykkur 20% afslátt af fargjaldi bíla og farþega vegna Arnarfjarðar ferðar.

Þið pantið farið hjá Sæferðum Sími: 433-2254 og gefið upp eftirfarandi:

1. upplýsingar um gerðar farartækis,
2. bílnúmer,
3. nafn þess er pantar,
4. hve margir í bíl,
5. símanúmer.

Ég þarf síðan að fá lista yfir bílnúmer vegna afsáttarins, listinn mun síðan vera til staðar þegar þið greiðið fyrir farið í Stykkishólmi og Brjánslæk.

Bókið ykkur í báðar ferðirnar strax því það er stundum fullbókað.

Kveðja
Jón Þórðarson
Bíldudal

Óhætt er hvetja menn til þess að nýta sér þetta tilboð, enda getur verið æði lýjandi að keyra alla Barðaströndina í vetrarfærð.