
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir Mánudagur, 12. janúar 2009 22:48
Lög Íslenska alpaklúbbsins eins og þau voru samþykkt á auka aðalfundi 4. júní 2008. (Beðist er velvirðingar ef uppsetning hefur brenglast við birtingu í frétt, en lögum verður fundinn varanlegur staður á nýrri heimasíðu klúbbsins.
Lög Íslenska alpaklúbbsins
1. grein Um Íslenska alpaklúbbinn
Félagið heitir Íslenski alpaklúbburinn, skammstafað ÍSALP. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Ísalp er félag áhugamanna um fjallamennsku sem leggur áherslu á að vera sameiginlegur vettvangur fjallamanna og stuðla að vexti fjallamennsku á Íslandi.
2. grein Félagsaðild
Félagar geta þeir einir orðið sem náð hafa 16 ára aldri. Einstaklingar yngri en 18 ára skulu þó leggja fram skriflegt samþykki forráðamanna fyrir aðild.
Atkvæðisbærir og kjörgengir eru þeir einir sem greitt hafa árgjald síðastliðins árs fyrir upphaf aðalfundar.
3. grein Skipun stjórnar og valdbærni
Stjórn Ísalp skipa 7 félagsmenn sem kosnir eru á aðalfundi með leynilegri kosningu.
Í stjórninni sitja formaður og sex meðstjórnendur. Kosið er um formann sérstaklega, en stjórn skipar sér gjaldkera og ritara, sem jafnframt er varaformaður, til eins árs. Stjórn skipar árlega fulltrúa í Samtök útivistarfélaga (Samút). Stjórn getur skipað nefndir eftir þörfum.
Kjörtímabil formanns og fjögurra meðstjórnenda er tvö ár en tveggja meðstjórnenda eitt ár. Af þeim meðstjórnendum sem kosnir eru til tveggja ára ganga tveir úr stjórn annað hvert ár. Stjórnarmenn sem ganga úr stjórn geta boðið sig fram til áframhaldandi setu.
Formaður skal ekki sitja lengur en sex ár samfellt.
Stjórnarfundir eru bærir til þess að taka ákvarðanir í samræmi við lög Ísalp ef fjórir stjórnarmenn eru viðstaddir. Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns.
Formaður ritar firma félagsins. Formaður og gjaldkeri rita prókúru félagsins.
4. grein Uppstillingarnefnd
Uppstillingarnefnd er skipuð þremur mönnum sem kosnir eru á aðalfundi og skal kjósa formann hennar sérstaklega, Uppstillingarnefnd skal sjá til þess að framboð berist í allar lausar stöður og sjá um framkvæmd kosninga á aðalfundi. Uppstillingarnefnd skal auglýsa lausar stöður í stjórn. Öllum félagsmönnum er heimilt að bjóða sig fram til stjórnar
5. grein Skoðunarmenn og reikningsár
Stjórn ber ábyrgð á bókhaldi félagsins. Reikningsár félagsins er almanaksárið. Reikningum félagsins skal lokið 10 sólarhringum fyrir boðaðan aðalfund.
Á aðalfundi skal kjósa tvo skoðunarmenn. Skoðunarmenn félagsins skulu fá reikninga til skoðunar eigi síðar en 4 sólarhringum fyrir aðalfund svo hægt sé að bera þá upp til samþykktar.
6. grein Framboð
Framboð til formanns eða meðstjórnenda félagsins þurfa að hafa borist uppstillingarnefnd minnst 10 dögum fyrir auglýstan aðalfund og vera kynntar félagsmönnum með birtingu á vef Ísalp sem og með tölvupóstsendingu á netföng skráðra félagsmanna minnst viku fyrir aðalfund. Berist ekki framboð í öll laus embætti geta kjörgengir félagsmenn boðið sig fram í lausar stöður á aðalfundi eftir að kosningar um framkomin framboð hafa farið fram.
7. grein Félagsfundir
Stjórn boðar til félagsfunda eftir þörfum. Fundarboð skal birt á vef Ísalp og sent með tölvupósti til skráðra félagsmanna samkvæmt félagatali með minnst viku fyrirvara. Óski minnst fimmtungur skráðra félagsmanna eftir fundi skal stjórn boða til hans á sama hátt.
8. grein Aðalfundur
Aðalfundur hefur æðsta vald í málum Ísalp og skal halda hann í febrúar ár hvert. Til hans skal boða með minnst tveggja vikna fyrirvara. Telst fundur löglegur sé hann auglýstur með birtingu fundarboðs á vef Ísalp sem og með tölvupóstsendingu á netföng skráðra félagsmanna skv. félagatali.
Á fundinum gilda almenn fundarsköp og ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum mála.
Verkefni aðalfundar eru:
1. Kosning fundarstjóra sem síðan skipar fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Ársreikningar lagðir fram til samþykktar, undirritaðir af tveimur skoðunarmönnum.
4. Lagabreytingar.
5. Kjör formanns Ísalp og meðstjórnenda.
6. Kjör uppstillingarnefndar.
7. Kjör tveggja skoðunarmanna ársreikninga.
8. Ákvörðun árgjalds næsta árs.
9. Önnur mál.
Atkvæðisbærir félagsmenn geta veitt öðrum félagsmönnum umboð til atkvæðagreiðslu í sínu nafni. Skal umboðið vera skriflegt og berast formanni uppstillingarnefndar í upphafi fundar. Enginn getur þó farið með umboð fleiri en eins manns. Umboð til atkvæðagreiðslu gildir einungis til greiðslu atkvæðis um þau málefni sem kynnt voru félagsmönnum með réttmætum hætti minnst viku fyrir aðalfund.
9. grein Lagabreytingar
Lagabreytingartillögur skal leggja fyrir aðalfund til samþykktar eða synjunar.
Tillögur að lagabreytingum þurfa að hafa borist stjórn minnst 10 dögum fyrir auglýstan aðalfund og vera kynntar félagsmönnum með birtingu á vef Ísalp sem og með tölvupóstsendingu á netföng skráðra félagsmanna minnst viku fyrir aðalfund. Samþykktar lagabreytingar skal birta á heimasíðu Ísalp eins fljótt eftir aðalfund og kostur er og taka þær þá gildi um leið.
10. grein Slit félagsins
Eigi má slíta félaginu nema það sé samþykkt á tveimur félagsfundum sem boðað er til á sama hátt og til aðalfundar og haldnir eru með minnst mánaðar millibili enda hafi fundarefnis verið getið í fundarboði.
Sé félaginu slitið og hætt starfsemi skulu allar eignir þess, lausa- og fastafjármunir fengnir Ferðafélagi Íslands til vörslu og umsjónar þar til Ísalp verður endurvakið eða annað félag með sama markmiði stofnað. Skal Ferðafélag Íslands fá hinu nýja félagi eignirnar í hendur er það óskar þess.