Borði

Jökull Bergmann og fyrirtæki hans Bergmenn

Jökull Bergmann hefur hleypt í loftið nýrri heimasíðu fyrir fyrirtæki sitt Bergmenn - Fagmenn í fjallaleiðsögn. Á síðunni er að finna flotta kynningu á þeim möguleikum sem gefast í fjallamennsku á Íslandi sem og mikið safn ljósmynda. Jökull Bergmann hefur nýverið lokið öðlast hina virtu alþjóðlegu UIAGM-IFMGA Fjallaleiðsögumanna gráðu, fyrstur íslendinga.


mynd: bergmenn.com

UIAGM-IFMGA Fjallaleiðsögumaðurinn og Ísalparinn Jökull Bergmann hefur sett í loftið nýja heimasíðu fyrir fjallaleiðsögufyrirtækið sitt Bergmenn - Fagmenn í fjallaleiðsögn.
Jökull býður uppá magnað úrval ferða á Íslandi sem og sérsniðnar Alpa ferðir fyrir Íslendinga en hann er eini Íslendingurinn sem hefur starfsréttindi í Evrópsku Ölpunum. Jökull náði þeim merka áfanga á þessu ári að verða fyrsti Íslendingurinn til að útskrifast með hina gríðarlega virtu alþjóðlegu UIAGM-IFMGA Fjallaleiðsögumanna gráðu.

ÍSALP óskar Jökli til hamingju með gráðuna og nýja heimasíðu sem er frábær kynning á þeim ótrúlegu möguleikum sem við eigum til fjallamennsku hér á Fróni. Á síðunni er að finna flott samansafn ljósmynda úr fjallaskíðaferðum, þyrluskíðun, ísklifri og Alpaferðum.

Slóðin á nýju síðuna er