Skrifað af: Skarphéðinn Halldórsson Fimmtudagur, 04. desember 2008 18:35

Milli tíu og tuttugu manns mættu í Skútuvoginn til að hamra saman lista yfir klassískar ísklifurleiðir. Sitt sýndist hverjum í byrjun fundar og fyrst verk á dagskránni var að ákveða við hvað ætti að miða þegar listinn væri saman settur.
Efitrfarandi atriði voru höfð að leiðarljósi:
* Umhverfi leiðarinnar
* Útlit
* Sögulegt gildi fyrir íslenskt ísklifur
* Vinsældir
* Að leiðin sé lýsandi fyrir viðkomandi svæði
* Að leiðin komi til með að halda gildi sínu um ókomin ár.
Að sjálfsögðu uppfylla ekki allar leiðirnar á listanum öll þessi ströngu atriði, en reynt var að hafa þau til viðmiðunnar.
Við valið var hafður sá háttur á að fundarmenn stungu upp á leiðum sem svo voru skeggræddar fram og til baka. Sumar leiðir komust undir eins á listann, aðrar þurftu að heyja blóðuga kostningabaráttu.
Að endingu urðu fundarmenn sáttir við eftirfarandi lista yfir 10 klassískar ísleiðir:
Einfarinn í Eilífsdal
Grafarfoss í Kistufelli
Paradísarheimt undir Eyjafjöllum
Stígandi í Múlafjalli
Ýringur í Brynjudal
Oríon í Flugugili
Glymur í Glymsgili
Þilið í Eilífsdal
Íste í Múlafjalli
Stekkjastaur í Kaldakinn
Til stendur að hygla þessum 10 leiðum enn frekar í næsta ársriti, vonandi verður það til þess að festa þær enn frekar í sessi sem klassískar ísklifurleiðir.
Ef ekki verðum við bara að halda nýjan fund...