Borði

leiðangursstyrkir

66°Norður auglýsir eftir umsóknum einstaklinga eða hópa í tvo leiðangursstyrki að andvirði 500.000kr. hvor. Freyr Ingi formaður Ísalp á sæti í dómnefnd ásamt fulltrúum frá FÍ, Útivist, Bandalagi Íslenskra skáta, Landsbjörgu og ÍFLM


mynd: 66north.is

Um er að ræða annars vegar styrk vegna leiðangurs sem hefur það að markmiði að styðja gott málefni þ.e. vekja athygli á og safna fjármunum fyrir málefnið. Umsóknarfrestur fyrir þennan styrk er til 1. mars.

Hinsvegar er um að styrk vegna krefjandi leiðangurs á nýjar slóðir. Umsóknarfrestur vegna þessa styrks er 1. nóvember.

Ísalp hvetur að sjálfsögðu ísalpara til að sækja um.

Nánari upplýsingar um styrkina og umsóknareyðublöð má finna á http://www.66north.is/um-66nordur/leidangursstyrkur-66nordur/