Borði

Bland í poka

ÍSALP blæs til sóknar á þessum síðustu og verstu. Fréttir berast af félögum á háum fjöllum í fjarlægum löndum, heimasíðugerð er í fullum gangi og gamla góða opna húsið endurvakið!


mynd: Google Earth

Þó að fátt beri annað á góma í fjölmiðlum þessa dagana en peningar eða skortur á þeim, þá eru félagar ÍSALP ekki lagstir í hýði.

Stjórn er ánægð með að tilkynna að loks hafa fundist réttu mennirnir í heimasíðugerðina og er hún nú komin á fullt skrið eftir langt og strangt undirbúningsferli.
Fyrir um ári síðan var gerð könnun á óskum og þörfum þeirra er notast við síðuna. Ítarleg þarfagreining var svo meðal annars unnin upp úr niðurstöðum þessarar könnunar.
Mun ekki líða á löngu þar til að ný síða kemst á laggirnar. Ný síða kallar að sjálfsögðu á aukið efni og munum við kalla eftir aðstoð félaga við öflun þess. Nánar um það síðar.

Nokkrir vaskir ÍSALP félagar að norðan lögðu fyrir skömmu land undir fót og eru nú stödd í hlíðum fjallsins Shivling á Indlandi. Nýjustu fréttir herma að þau séu stödd í búðum 1 í 5160 m hæð og hyggist dvelja þar í tvær nætur áður en lengra er haldið.
Nánar má lesa um leiðangurinn hér

www.shivling2008.blogspot.com

Margir félagar mættu í þá gömlu góðu á opin hús hjá ÍSALP en við höfum nú ákveðið að endurvekja þau.
Fyrsta opna húsið verður haldið miðvikudaginn 15. október og gerum við ráð fyrir fullu opnu húsi.
Heyrst hefur að félagar séu farnir að setja saman lista yfir leiðir sem klifra eða skíða á þennan veturinn. Mætum öll á opið hús og berum saman bækur. fáum hugmyndir, plönum ferðir og drekkum kreppukaffi í boði ÍSALP.

Að síðustu minnum við á ísklifurferð í Sólheimajökul sem Skabbi fer fyrir laugardaginn 18. október.