Borði

Hús til leigu við rætur Hlíðarfjalls

Stjórn ÍSALP fékk nýlega sendan tölvupóst frá Rúnari í Nikita og Hrafnkeli. Þeir félagar eiga glæsilegt hús í við rætur Hlíðarfjalls fyrir norðan og bjóða félögum í Ísalp helgarleigu á húsinu í vetur.


mynd: Rúnar og Keli

Sæl/sælir

Við félagarnir keyptum fyrir stuttu hús á Akureyri, sem við ætlum að leigja út þegar við erum ekki að nota það sjálf. Ísalp félagar eru sérstaklega velkomnir, enda þar á ferð vandaðir einstaklingar sem fyrst og fremst eru komnir til að njóta samskipta við hvern annann og náttúruna, frekar en að vera gersamlega hauslausir á fylleríi niðri í bænum ...!

Tilfellið er að húsið er við rætur Hlíðarfjalls. Hægt er að renna sér beint úr fjallinu og niður í húsið. Þar er gistipláss fyrir um 15 manns í rúmum, þrjú baðherbergi og tvö eldhús í tveimur íbúðum sem hægt er að leigja saman eða í sitthvoru lagi. Til staðar eru straujárn, vax og helstu verkfæri sem þarf til að laga/viðhalda skíðum og brettum eftir notkun í sumum af bestu brekkum landsins, sem maður horfir einmitt á út um bæði eldhúsið á neðri hæðinni (útsýni: Hlíðarfjall), og eldhúsið á efri hæðinni (útsýni út Eyjafjörður og Kaldbakur) svo einhverjir geysilegir sölupunktar séu nú nefndir aðrir en þessi brilliant staðsetning sem er auðvitað lykilatriði.

Þráðlaust net fyrir vinnufíkla, Enid Blydon og Tarzan blöð fyrir hina ...

Verð á gistingu fyrir Ísalp meðlimi að Glerá 2:

Íbúð niðri 4-6 manns
Íbúð uppi 8-10 manns

Helgi frá föstudegi kl. 18 til sunnudags kl. 18 fer á 25.000 fyrir neðri hæðina en 34.000 fyrir efri hæðina. Aukadagur kostar 7.000 - 10.000. Hægt er að leigja neðri hæðina í heila viku (fös-fös) á 50.000 eða efri hæðina á 65.000.

Vertu í sambandi ef þig langar að gista við rætur Hlíðarfjalls. Við bókum fyrir haustið og veturinn á næstu 3 vikum.


Góðar stundir

runar(hjá)nikitaclothing.com og hrafnkell(hjá)intrum.is