Borði

Árgjald

Greiðsluseðlar fyrir starfsárið 2008-2009 hafa verið sendir út til félagsmanna.


mynd: Ísalp

Innheimta fyrir félagsgjöld starfsársins 2008-2009 er hafin. Greiðsluseðlar ættu nú að hafa borist félagsmönnum og líkt og samþykkt var á síðasta aðalfundi er árgjaldið 3500 krónur.

Hvetjum alla til að greiða sem fyrst enda styttist í að nýtt ársrit og félagsskírteini verða send út til félagsmanna.

Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að senda fyrirspurnir á gjaldkeri(hjá)isalp.is

Með kveðju,

f.h. stjórnar ÍSALP

Björk Hauksdóttir
gjaldkeri ÍSALP