Borði

Tindfjallaskáli kominn til höfuðborgarinnar

Hópur vaskra manna tók sig til og snaraði Tindfjallaskálanum upp á pall og brunaði með hann í bæinn um helgina. Á næstu mánuðum mun verður skálinn færður í betra horf.


mynd: Maggy

Um helgina fluttu Vinir Tindfjallaskála hann úr Tindfjöllum á nýtt bráðabirgðaheimili í Mosfellsbæ.
Fjöldi manns tók þátt í flutningnum en það leið minna en sólarhringur frá því að keyrt var af stað út úr bænum þar til að skálinn var kominn í bæinn. Verkið gekk gríðarlega vel og skálinn haggaðist ekki þrátt fyrir ansi dapulegan veg niður í Fljótshlíð.

Viðræður hafa staðið yfir við nokkra aðila um hentugan stað fyrir skálann í vetur, hvar hann verður gerður upp. Það skýrist vonandi fljótlega.

Mál sem byrjaði sem símhringing nokkurra Ísalpara frá Kyrgyzstan í byrjun árs er nú komið af umræðustigi á framkvæmdastig. Næstu verkefni eru að klára viðræður um varanlegri stað, afla styrkja og hefja smíðar. Ætlunin er að skila skálanum endurbyggðum "á sama tíma að ári".

Við viljum þakka HSSR, Hjálparsveitinni í Garðabæ og Björgunarfélagi Árborgar alveg sérstaklega vel fyrir lán á tækjum og aðstoð, ásamt Hallgrími Magg og Magnúsi föður hans, sem hjálpuðu okkur og tóku okkur opnum örmum í Miðdal. Tommi Júl mætti með gröfuna sína uppeftir sem sparaði örugglega heila helgi í að moka grjóthnullungum frá skálanum. Þeir sem komu uppeftir stóðu sig eins og algjörar hetjur, það var tekið á því fram á nótt og ræst fyrir allar aldir út aftur. Vanir og öflugir menn, ekki lengi að "massa þetta". Hlynur Skagfjörð var að öðrum ólöstuðum aðalmaðurinn í þessum flutningi, límið sem hélt öllu saman. Gefum honum gott klapp.


Nú mega Ísalparar fara að leggja eitthvað klink á sparireikning eða sníkja frá fjölskyldu og vinum sem þeir vita að væru til í að leggja okkur lið. Sótt verður um styrki en ef félagsmenn vita um einhverja staði þar sem væri líklegra en ekki / öruggt að við fengjum eitthvað fé til verksins mætti endilega senda línu á okkur eða einhvern í stjórn Ísalp.