
Skrifað af: Skarphéðinn Halldórsson Föstudagur, 25. júlí 2008 16:35

Klifurhetjum- og valkyrjum landsins var stefna á Hnappavelli í Öræfum helgina 18. - 20. júlí. Markmiðið var að klifra allar boltaðar klifurleiðir sem getið er í nýútkomnum leiðarvísi um svæðið, samtals 93 leiðir. Ríflega 30 manns tóku þessa áskorun, bæði gamlar kempur, hoknar af reynslu sem og nýgræðingar í sportinu. Það var ljóst frá upphafi þetta yrði ekkert íhlaupaverk. Þátttakendum var skipt í flokka eftir reynslu og getu, flokkarnir skiptu svo leiðum niður á einstaklinga. Velflestir þurftu að takast á við leiðir sem voru í kringum, eða yfir, eigin getumörkum.
Með gríðarlegri þrautsegju fór svo að lokum að allar nema tvær erfiðustu leiðirnar voru klifraðar þegar yfir lauk á sunnudag. Óhætt er að segja að margir hafa séð miklar framfarir á eigin getu þessa einu helgi.
Laugardagskvöldið töfraði Kristín Marta fram þvílíka veislumáltíð ofaní alla á svæðinu að það á sér vart hliðstæðu á tækniöld. Ísalp sló upp glæsilegu veislutjaldi sem klúbburinn fjárfesti í fyrir skemmstu. Það kom þó að litlum notum því ótrúleg veðurblíða blessaði samkomuna allt frá fystu mínútum þar til yfir lauk. Vonum við að það komi að góðum notum á hátíðum og mannfögnuðum í framtíðinni.
Stjórn Ísalp þakkar öllum þeim sem lögðu hart að sér við klifrið og ekki síður þeim sem skipulögðu viðburðinn og sáu til þess að allt gengi smurt!
Að lokum minnum við þátttakendur, sem og aðra velunnara Hnappavalla, á að greiða hið árlega kamargjald. Hvort sem fólk tjaldar á Völlunum til að klifra eða bara á leið sinni um landið er mælst til þess að það láti 500kall af hendi rakna á hverju sumri í kamarsjóðinn. Peningurinn sem safnast í kamarsjóðinn er nýttur til viðhalds á kamri og borðum, sem og til kaupa á boltum, akkerum og augum til uppbyggingar og viðhalds á klifurleiðum.
Hægt er að greiða inn á reikning Klifurfélags Reykjavíkur:
Rnr: 111-05-274410, Kt: 410302-3810, Skýring: Kamar
Stjórnin