
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir Mánudagur, 30. júní 2008 14:52

Stjórnarmenn sem aðrir félagar nýta sumarið vel til fjallaferða.
Freyr og Sveinborg fóru í síðastliðinni viku á Hraundrangann með nýja gestabók og forláta pela sem hefur verið grafið í merki klúbbsins. Pelinn var fylltur dýrindis viskýi en glundri úr gömlu flöskunni hellt niður. Gamla flaskan sem og vafasamir vafningar og teip í leiðinni voru flest fjarlægð, þó líklega þoli Dranginn aðeins meiri tiltekt.
Gestabók er nú í tvöföldum þykkum plastpoka með lokunarsystemi. Vonast er til að hún endist lengur en sú síðasta sem var fjarlægð síðastliðin vetur, þá í mjög slæmu ásigkomulagi.
Mælum við með því að banka upp á hjá ábúendum á Staðarbakka en þau eru sérlega áhugasöm um hitta fjallafólk og heyra af uppgöngu.