
Skrifað af: Smári Stefánsson Mánudagur, 02. júní 2008 14:36

Við skiltið er tekin vinstri beygja og ekið u.þ.b. 1 km til norðurs. Bíllinn er stöðvaður skömmu áður en komið er að hliði. Þaðan er gengið eftir stikaðri leið upp að girðingu við neðstu bústaðina og henni fylgt útfyrir þá. Stikurnar halda svo áfram upp hlíðina í átt að hamrinum. ATH að stikurnar eru enn ómálaðar en það stendur til bóta, þær ættu þó ekki að fara framhjá neinum.
Ísalp hvetur alla klifrara og aðra sem eiga erindi að Valshamri til að notast við nýju leiðina og benda þeim sem ekki þekkja til, á hana. Það græða allir á því að sátt sé um málið. Árekstrar á milli klifrara og sumarbústaðaeigenda ættu nú heyra sögunni til.
Ennfremur hvetur Ísalp alla til að nota þetta frábæra klifursvæði sem er svo skammt frá höfuðborginni.