
Skrifað af: Smári Stefánsson Föstudagur, 30. maí 2008 12:24

Þátttakendur í leiðangrinum eru eftirtaldir:
Arnar Þór Emilsson, 28 ára flugmaður
Berglind Aðalsteinsdóttir, 27 ára læknir
Eiríkur Geir Ragnarsson, 28 ára rafvirki
Gunnar Sverrir Ragnarsson, 28 ára nemi
Kári Erlingsson, 25 ára lögreglumaður.
Shivling er dregið af nafni guðsins Shiva sem er einn þriggja guða í Trimurti kerfi Hindúisma. Þar er Brahma skaparinn, Vishnu verndarinn og Shiva er tortímandinn. Af nafni fjallsins að dæma má því álykta að heimamönnum hafi þótt fjallið ógnvekjandi.
Árið 1938 var þýskur leiðangur á ferð á þessum slóðum til að finna mögulega leið á toppinn en dæmdi fjallið ófært vegna þess hversu bratt það bæri á alla kanta. Það var svo ekki fyrr en 1974 sem fjallið var klifið fyrst og var farið upp vestur hrygg þess, en það er einmitt sama leið og íslenski leiðangurinn mun fara. Að minnsta kosti 10 aðrar leiðir hafa verið klifraðar á toppinn en hver þeirra aðeins einu sinni til tvisvar. Vestur hryggurinn hefur fengið alpagráðuna D (difficult).
Leiðangurinn mun ganga frá þorpinu Gangotri og fylgja pílagrímsslóðum að upptökum Ganges fljótsins en það kemur undan Gangotri jöklinum sem fara þarf yfir til að komast að rótum Mt. Shivling. Grunnbúðir verða settar upp í u.þ.b. 4400 metra hæð, þaðan liggur leiðin upp stórgrýtta skriðu upp í 5100 metra þar sem fyrstu búðir verða reistar. Þaðan liggur leiðin eftir hryggnum yfir kletta, snjó og ís. Búðir 2 verða settar upp í u.þ.b. 5600 metrum og þriðju búðir í 6000. Á hluta leiðarinnar verða settar upp fixaðar línur, m.a. upp 100 metra ísfall rétt ofan við þriðju búðir. Þaðan er brött snjóbrekka sem leiðangursmenn hafa hugsað sér að fara á hlaupandi tryggingum.
Aðeins einn leiðangur fær leyfi til að reyna við fjallið í hverjum mánuði þannig að ekki verður mikill mannfjöldi þar. Íslendingarnir eru búnir að tryggja sér októbermánuð 2008, en þá eru aðstæður hvað stöðugastar þarna (ásamt júní og júlí).
Töluverður kostnaður fyrlgir svona leiðangri og mun Cintamani styðja við bakið á hópnum í þeim efnum.
Ísalp óskar leiðangursmönnum til hamingju með styrkinn, góðrar ferðar og vonar að allt muni ganga vel.