Borði

Simon Yates

Simon Yates mun halda myndasýningu og fyrirlestur í sal Ferðafélags Íslands í kvöld kl. 20. Mun hann fjalla um Eldlandið, Tierra del Fuego, syðsta landið í Suður-Ameríku. Margir þekkja Simon Yates úr bókinni/myndinni Touching the Void. Margir hafa nú einnig séð hann í nýjasta meistarastykki Ingvars Þórissonar, Ama Dablam - Beyond the Void.


mynd: Ingvar Þórisson

Simon Yates hefur verið á klakanum undanfarna daga til að vera viðstaddur frumsýningu á fyrstu íslensku fjallakvikmyndinni í fullri lengd, Ama Dablam - Beyond the Void sem Ingvar Þórisson á heiðurinn af.
Simon notar að sjálfsögðu ferðina vel og ætlar í kvöld að halda fyrirlestur/myndasýningu í sal F.Í. í Mörkinni. Hefjast herlegheitin kl. 20.
Simon ætlar að kynna okkur fyrir Eldlandinu, Tierra del Fuego sem hann hefur kannað vel.

Nú hefur verið þétt setinn bekkurinn í Háskólabíó undanfarin kvöld en þar hefur mynd Ingvars, Ama Dablam - Beyond the Void verið sýnd.
Mátti sjá gapandi andlit af undrun og aðdáun í sal 2, en myndirnar sem Ingvar náði er hann klifraði Ama Dablam voru ótrúlegar. Flotta tónlist, húmor, tedrykkju og fyndnar týpur er líka að finna í myndinni.
Ákveðið hefur verið að sýna myndina eitthvað áfram í Háskólabíó og eru allir fjalla- og náttúruunnendur hvattir til að fara í bíó.