Borði

Ama Dablam. Beyond the Void

Eins og Ísölpurum er kunnugt fóru Ingvar Ágúst Þórisson og Viðar Helgason í leiðangur síðastliðið haust. Stefnan var sett á Ama Dablam. Með í för var Simon nokkur Yates og kvikmyndatökugræjur. Afraksturinn ferðarinnar er heimildarmynd og verður hún frumsýnd á næstu dögum.


mynd: N.N.

Það hefur varla farið fram hjá Ísölpurum að félagar okkar Ingvar Á. Þórisson og Viðar Helgason héldu í víking í haust. Markmiðið var að klifra Ama Dablam ( 6856 m ) sem er íslendingum ekki að öllu ókunnugt.
Leiðangurinn var farinn þrátt fyrir að árið 2006 hafi 3. búðir í fjallinu þurrkast út í snjóflóði þar sem 6 fjallgöngumenn fórust. Litlu mátti muna að hið sama gerðist þetta árið.
Samferðamaður þeirra félaga var ekki af verri endanum, hinn kunni Simon Yates sem margir kannast við eftir lestur bókarinnar Touching the Void.

Ingvar klifraði fjallið með kvikmyndatökugræjur og filmaði það sem fyrir bar. Afraksturinn er heimildarmynd þar sem skyggnst er inn í heim háfjallamennskunnar og fegurð Himalaya-fjallanna fær sinn skerf. Ætla má að Simon sýni þar snilldartakta enda vanur eftir að hafa komið fram í Touching the Void.
Mynd Ingvars heitir því magnaða nafni Ama Dablam - Beyond the Void og er 64 m á lengd.
Myndin verður sýnd í Háskólabíói í næstu viku, á mánudags og þriðjudagskvöld ( 26. og 27. maí) kl. 20.
Hvetjum við að sjálfsögðu alla til að fylla salinn í Háskólabíó. Margir telja að um fyrstu alvöru íslensku fjallamyndina sé að ræða?
Simon Yates ætlar svo að sýna myndir og halda tölu í sal Ferðafélagsins miðvikudagskvöldið 28. maí kl. 20.

Ama Dablam - Beyond the Void
Hdv. 60 mínútur
Leikstjóri: Ingvar A Thorisson
Myndataka: Ingvar A Thorisson
Pedawa Pasang Dawa
Tónlist: Eberg/Barði Jóhannsson