Borði

Ama Dablam - Beyond the Void

Myndin fjallar um leiðangur Viðars Helgasonar og Ingvars Ágústs Þórissonar á Ama Dablam, 6856 m háan tind í Himalaya. Samferðarmaður þeirra var hinni þekkti fjallamaður Simon Yates.

Ingvar Á. Þórisson og Viðar Helgason ásamt föruneyti skelltu sér á haustdögum í Himalaya leiðangur. Þeir voru í góðum félagsskap hins kunna fjallamanns Simon Yates, sem margir þekkja úr bókinni/myndinni Touching the Void.
Leiðangurinn var farinn þrátt fyrir alvarlegt slys á fjallinu árið 2006 þegar 3. búðir þurrkuðust út í snjóflóði og 6 fjallgöngumenn fórust. Litlu munaði að eins færi nú í haust.
Ingvar bar með sér kvikmyndagræjur á fjallið og myndaði það sem fyrir augu bar. Nú hefur hann lokið við gerð myndarinnar og gefst okkur brátt tækifæri til að líta hana augum.
Ísalparar hafa sumir hverjir heyrt af leiðangrinum á spjallsíðum en nú gefst tækifæri til að skyggnast betur inn í veruleika háfjallamennskunnar.
Myndin verður sýnd í Háskólabíó mánudaginn 26.maí og þriðjudaginn 27. maí kl. 20.

Þess má geta að Simon Yates verður á landinu í tengslum við sýninguna og mun halda myndasýningu/fyrirlestur í sal F.Í. miðvikudagskvöldið 28.maí.

Ama Dablam - Beyond the Void

Hdv. 60 mínútur
Leikstjóri: Ingvar A Thorisson
Myndataka: Ingvar A Thorisson
Pedawa Pasang Dawa
Tónlist: Eberg/Barði Jóhannsson