Borði

Allir á Hnappavelli

Nýverið kom út handbók um klifur á Hnappavöllum. Um tímabært rit er að ræða þar sem fjöldi leiða hefur nálægt því tvöfaldast síðan Snævarr Guðmundsson og Björn Baldursson birtu sinn, annars ágæta leiðarvísi í ársriti Ísalp árið 1994.


mynd: Jón Viðar Sigurðsson

Handbókin er afar vel unnin og skýrar myndir af svæðunum þar sem leiðirnar eru merktar inná. Í handbókinni eru auk leiðarvísis um sportklifurleiðir, upplýsingar um grjótglímu og ísklifur svæðisins og skemmtilegur fróðleikur um náttúrufar og gönguleiðir.

Um 100 ljósmyndir eru í bókinni sem spanna þann tíma sem klifrað hefur verið á Hnappavöllum þ.e. frá 1986 til dagsins í dag.

Nú er bara að hlaupa til og skella sér á eintak. Sala fer fram í klifurhúsinu og kostar stykkið 1450 kr. sem er ekki neitt!