
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir Miðvikudagur, 16. apríl 2008 13:58

Magnað að sjá allan þennan fjölda Ísalpara og annarra áhugasamra á fyrra kvöldi Banff sem fór fram í Háskólabíó í gærkvöldi.
Það var þéttsetinn bekkurinn í sal 2 og var fagnað mikið eftir myndir eins og Land hinna hreinu, sem var sett inn í dagskrá á síðustu stundu. Um er að ræða mynd sem þeir Helgi Hall, Steppó, Sissi og Hálfdán tóku upp í ferð sinni í hinn rómaða Karakoram fjallgarð í Pakistan árið 2006.
Frábær frumburður hjá þeim strákum og lýsum við eftir fleiri slíkum myndum.
Nú velti ég aðeins fyrir mér einu : ,, Hvar var Ali?"
Blogg þeirra félaga síðan á ferðinni stóð:
http://alpaklifur.blogspot.com/
Eftir hlé fengu myndir sem sendar voru inn í ljósmyndasamkeppni ÍSALP, að rúlla í gegn. Að því loknu voru vinningsmyndirnar kynntar og verðlaun veitt í 3 flokkum.
Verðlaun fengu:
Skíði: Berglind Aðalsteinsdóttir
Ísklifur: Guðmundur Tómasson
Fólk á fjöllum: Björgvin Hilmarsson
Fjallakofinn gaf verðlaun og kunnum við þeim hinar bestu þakkir.
Vinningsmyndirnar má líta augum hér.
http://sveinborg.smugmug.com/Ljosmyndasamkeppni%20ISALP