Borði

Eyjafjallajökull

19 Ísalparar löbbuðu á plönkum uppá Eyjafjallajökul þann 5. apríl síðastliðinn. Stefnan var sett á Hámund sem hæsti tindur jökulsins, um 1660m


mynd: Sveinborg

19 Ísalparar voru mættir á bílastæðið við Seljavallalaug snemma morguns síðastliðinn laugardag. Veðrið var eins og best verður á kosið, kannski of heitt og glampandi sól allan tíman, en þó nokkur vindur á toppnum. Uppgangan gekk vel og niðurferðin enn betur, enda fljótlegt þegar allir renna sér niður. Færið varð betra og betra eftir því sem neðar dró. Góður dagur á fjöllum.