
Skrifað af: Skarphéðinn Halldórsson Sunnudagur, 06. apríl 2008 21:40

Vinir Tindfjallaskála buðu sig fram á síðasta aðalfundi til að taka málefni skálans föstum tökum á næstu misserum.
Nokkuð undirbúningsstarf hefur farið fram, búið er að sækja um nokkra styrki, ná utan um það fé sem þegar er tryggt til viðhalds og halda fundi um málið, meðal annars með fulltrúum stjórnar Ísalp.
Þá er búið að fá nokkra valinkunna menn til liðs við hópinn sem hafa lagt þessu málefni lið í gegnum árin. Ekki stendur til að þessi hópur taki að sér Bratta, verkefnið einskorðast við Tindfjallaskála og skorum við á menn að koma á fót sambærilegu verkefni um Bratta, að skoða hvort Ísalp ætti að halda þeim rekstri áfram, ástand osfrv.
Næsta skref - ástandsskoðun
Um helgina verður ástand skálans tekið út. Ef sú rannsókn skilar jákvæðri niðurstöðu verður fyrsti fasi verkefnisins magntekinn og stefnt að því að klára hann sumars.
Erfitt er að segja til um framhaldið þar til eftir skoðun og því fer hópurinn í Tindfjöll um helgina með fagmenn sér til aðstoðar til að fá sem besta mynd af ástandinu. Vonandi verður niðurstaðan jákvæð. HSSR mun m.a. leggja til bifreið til fararinnar og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir það.
Framhaldið - hvað felst í því?
Ef niðurstöður skoðunar verða jákvæðar væri fyrsti fasi verkefnisins að ná tökum á vandamálinu og koma í veg fyrir frekari skemmdir. Líklega væri um að ræða að skipta um plötur, pappa, járn, glugga og gler. Búið er að fá vilyrði fyrir góðum kjörum á efnið, og Hálfdán fær t.d. glerið gefins.
Ef þessi árangur næst í sumar verður síðan haldið áfram að ári og farið í það viðhald sem þarf að innanverðu.
Af hverju að standa í þessu?
Skoðun hópsins er að Ísalp beri að varðveita skálann, jafnt vegna sögulegra verðmæta sem felast í honum og vegna þess að það eru ómetanleg verðmæti fyrir skálann að eiga fjallaskála á þessum stað, í vöggu alpinisma á Íslandi. Skálanum ber því að sýna þann sóma sem hann á skilið. Rekstrarforsendur fyrir skálanum eru einnig ágætar sé honum haldið vel við.
Fyrir hönd vina Tindfjallaskála,
Sveinn Fr. Sveinsson, Stefán Örn Kristjánsson, Hlynur Stefánsson, Sigurður Skarphéðinsson og Hálfdán Ágústsson