Borði

Liðnir viðburðir og komandi dagská

Mikið hefur verið að gerast hjá klúbbnum að undanförnu og margir spennandi viðburðir framundan.


mynd: Ísalp

Vetrarvertíð í fullum gangi.

Eins og félögum er væntanlega kunnugt um var aðalfundur Ísalp haldinn í síðustu viku. Var þar skrafað og skeggrætt en fundargerð og ársreikningur hafa verið birt á síðu Ísalp. Þrír félagar létu af störfum í stjórn, þeir Ágúst Kristján Steinarsson, Viðar Helgason og Þorvaldur V. Þórsson. Stjórn þakkar þeim farsælt samstarf. Nýjir meðlimir í stjórn eru þau Bragi Freyr Gunnarsson, Atli Jósefsson og Björk Hauksdóttir.

Stjórn er nú þannig skipuð:

Freyr Ingi Björnsson, formaður
Skarphéðinn Halldórsson, ritari
Björk Hauksdóttir, gjaldkeri

Meðstjórnendur:
Atli Jósefsson
Bragi Freyr Gunnarsson
Smári Stefánsson
Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir

Um liðna helgi fór fram árlegt ísklifurfestival klúbbsins. Að þessu sinni var fjöldanum baint austur á land, nánar til tekið í Breiðdal. Þar hafði stjórnin tekið á leigu forkunnarfagurt veiðhús Breiðdalsár, fullbúið með vertinum Súdda. 17 félagsmenn þáðu gistingu í veiðihúsinu en 4 gistu annarsstaðar í dalnum. Aðstæður til ísklifurs eru frábærar í Breiðdalnum og var fjöldi nýrra leiða settur upp. Meðal annars leit fyrst boltaða ísklifursvæði landsins þar dagsins ljós. Þar er nú að finna 5 boltaðr leiðir, gráðaðar frá WI5 til M10. Veður var með besta móti um helgina og óhætt að segja að þátttakendur hafi verið í skýjunum eftir helgina.

Festivölum er ekki lokið í bili því helgina 7.-9. mars fer fram hið margrómaða og viðfræga Telemarkfestival. Gleðin fer fram í hlíðum Hlíðarfjalls. Keppt verður í kvenna og karlaflokki í samhliðasvigi og að sjálfsögðu verður sá hópur verðlaunaður sem klæddur verður magnaðasta búningnum. Nánari dagskrá má finna á dagskrársíðunni en þar er fólk einnig hvatt til að skrá sig.

Skíðafólk er í miklum ham og því höfum við sett á dagskrá fjallaskíðaferð á Eyjafjallajökul þann 5. apríl. Eftir góða upp og niðurferð frá Seljavöllum er tilvalið að ná úr sér stífleikanum í gömlu lauginni.

Í fjöldapósti sem sendur var í janúar var sagt frá ljósmyndasamkeppni sem klúbburinn stendur fyrir.
Nú birtum við nokkrar reglur fyrir keppnina, svona til að þetta verði alvöru!

Athugið að skilafrestur er mánudagurinn 7. apríl og verðlaunamyndir verða kynntar á Banff hátíðinni sem fer fram í vikunni 14. – 18. apríl.

- Myndum skal skila á jpeg sniði (.jpg)
- Upplausn myndar er frjáls en hafa skal í huga að hugsanlega fer mynd á prent og því er gott að upplausn sé að minnsta kosti 2481px X 1749px.
- Hvorki má bæta við hlutum úr öðrum myndum, teikna eða bæta inn texta á myndina.
- Heimilt er að laga minniháttar galla í myndum en samt sem áður er bannað að eyða, afrita, búa til eða færa þýðingarmikinn hluta myndarinnar. Mælt er með að þátttakendur taki fram allar breytingar sem gerðar eru á myndinni.
- Þátttakandi tiltekur í hvaða flokk myndin á að keppa.
* Ísklifur
* Skíði
* Mannlíf á fjöllum
- Hámarksfjöldi mynda á hvern þátttakanda eru 3 myndir í hverjum flokki, samtals 9 myndir sé tekið þátt í öllum flokkum.
- Myndin skal vera tekin á þessari vetrarvertíð og er síðasti skilafrestur 7. Apríl.
- Myndir skulu sendast á veffangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
- Verðlaun verða veitt fyrir bestu mynd í hverjum flokki og verða þau tilkynnt á Banff kvikmyndahátíðinni.