
Skrifað af: Smári Stefánsson Þriðjudagur, 26. febrúar 2008 18:18

Þátttakendur voru ellefu og tveir leiðbeinendur. Farið var í undirstöðuatriði fjallamennsku að vetri til og námskeiðið kennt skv. staðli björgunarsveitanna, Fjallmennsku 1.
Meðal efnis sem farið var í var ferðamennska í brattlendi, létt klifur og notkun ísaxa og brodda. Þátttakendur spreyttu sig á ísaxarbremsu, höggva spor, setja inn tryggingar í snjó og að tryggja félaga við létt klifur. Um kvöldið var svo farið í alla helstu hnúta og vinna með línur og tryggingar. Þátttakendur æfðu því næst leit með snjóflóðaýlum. Mat á snjóflóðahættu var sérstaklega tekið fyrir, teknar voru snjógryfjur (prófílar), spáð í snjóalög og helstu áhættuþætti tengda snjóflóðum ofl.
En þótt listinn sé langur yfir efni námskeiðisins, þá voru aðstæður til útivistar etv. mest krefjandi þátturinn í þessu votviðri og eins og maðurinn sagði, þá snýst fjallamennska 1 um að týna ekki húfunni sinni.
Leiðbeinendur voru Róbert Þór Haraldsson og Atli Pálsson.