Borði

Upplýsingar um Ísfestival

Leiðarlýsing að veiðhúsinu að Eyjum í Breiðdal og dagskrá helgarinnar.


mynd: Ísalp

Ísklifurfestival klúbbsins verður haldið í Breiðdal að þessu sinni. Gist verður í veiðihúsinu að Eyjum í Breiðdal og kosta gistinóttin 2000 krónur.
Til að komast í húsið er ekið út af þjóðvegi eitt til vinstri áður en komið er að Breiðdalsvík (964). Veiðhúsið sést á hægri hönd ca. 6 kílómetra inn í dalnum.
Aðstaðan í veiðihúsinu eru með besta móti og rúmpláss fyrir 20 manns. Einnig er hægt að bæta við dýnum á gólfið eftir þörfum. Þó að herbergjum fylgi sængur og koddar er vissara að grípa með sér svefnpoka ef mannmargt verður í húsinu.
Stórt eldhús, borðsalur, setustofa, gufubað og heitur pottur fylgja húsinu. Þeim sem hyggjast nýta sér gufuna og pottinn er bent á að grípa með sér handklæði.


Dagskrá:

Töluverður fjöldi verður á svæðinu strax á fimmtudagskvöldi. Þeir geta miðlað af reynslu sinnu af svæðinu fyrir þá sem koma á föstudaginn. Á laugardaginn klifra menn eins og þeim sýnist, Smári og Skabbi sjá til þess að óreyndari menn finni e-ð við sitt hæfi og setja upp top-rope ef áhugi er fyrir því og leiðbeina. Um kvöldið verður svo kjötsúpa í boði Ísalp í veiðihúsinu.
Á sunnudaginn klifra þeir sem vilja. Þá þarf einnig að ganga frá húsinu. Menn hjálpast að sjálfsögðu að við það. Reiknað er með að flestir fari að tínast í bæinn um kaffileitið.

Allar frekari upplýsingar veitir Skabbi í síma 8645834