
Skrifað af: Smári Stefánsson Fimmtudagur, 24. janúar 2008 11:36

Oft hefur mikið verið deilt á verðlaunin fyrir hvernig tilnefnt er til verðlaunanna og náði það hámarki í fyrra þegar Groupe de Haute Montagne, annar aðstandandi verðlaunanna dró sig út vegna óánægju með aðferðafræðina á bak við tilnefningarnar. Montagnes magazine (hinn aðstandandi verðaunanna) keyrði hins vegar athöfnina í gegn á eigin vegum.
Ekki batnaði það þegar í ljós kom að eitt af tilnefndu teymunum hafði hagrætt sannleikanum aðeins um afrek sitt.
Það sem sennilega toppar þetta þó er að einn af sigurvegurum síðasta árs, skrifaði nokkrar greinar um það hvernig val á sigurvegurum væri alls ekki í anda alpinisma.
Nú ræða menn um það hvernig megi bæta athöfnina til að sátt náist um hana. En það er þó ljóst að engin athöfn verður fyrr en í fyrsta lagi árið 2009.
sjá nánar á: http://www.alpinist.com/doc/web07-08w/newswire-piolet-2008-cancel