
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir Fimmtudagur, 24. janúar 2008 11:12

Nú snjóar og snjóar (minnsta kosti sunnan heiða) og margir fjallamenn nýta sér frábærar aðstæður til rennslis innan og utan brautar. Á meðan láta klifrarar snjóinn lítið aftra sér frá því að komast að bestu ísleiðunum.
Þó gleðin sé mikil þá leynast hættur í öllum þessum snjó. Jú einmitt, snjóflóð!
Kæri félagi. Tekur þú alltaf með þér ýli, skóflu og snjóflóðastöng þegar þú ferð út að leika? Kanntu að nota þessi tól? Fylgist þú grannt með veðri og veðurspá? Spáir þú í leiðavali? Hefurðu aflað þér þekkingar um snjóflóð með því að fara á námskeið og lesa þér til um snjóflóð.
Kannski er kominn tími til að fræðast frekar um snjóflóð og mat á snjóflóðahættu? Fjallamaðurinn og snjóflóðasérfræðingurinn Leifur Örn Svavarsson mun kenna á snjóflóðanámskeiði sem hefst þann 30. janúar.
Þetta segir í námskeiðslýsingunni: ,,Námskeiðinu er ætlað að kynna snjóflóð og viðbrögð og varnir við þeim fyrir útivistarfólki sem stundar vetrarferðamennsku, skíðafólki, brettafólki og göngufólki. Í námskeiðslok eiga þátttakendur að geta ferðast af öryggi í fjalllendi að vetri til.“
Nánari upplýsingar um verð og skráningu getið þið fundið í námskeiðsdálkinum á þessari heimasíðu.
Einnig er vert að benda á svokallað Level 1 snjóflóðanámskeið sem haldið er á vegum Björgunarskóla Landsbjargar í byrjun mars. Þetta námskeið er af kanadískri fyrirmynd og stendur í 6 daga! Námskeiðið er opið öllum en þó langt í frá ókeypis fyrir fólk utan björgunarsveita. Kostar aðeins 150 þúsund krónur.
Að lokum smá fréttir af liðnum námskeiðum.
Snemma í janúar var haldið framhaldsnámskeið í ísklifri og hafði Leifur Örn einn af kennurunum þetta að segja um námskeiðið:
,, Ísklifurnámskeiðið gekk vel. Skráðir þátttakendur voru 9 sem allir ,,leiddu" með stíl þvert yfir gólfið á salarkynnum Alpaklúbbsins og bundu megintrygginguna í stólaröð áður en þeir tóku félaga sinn ,,upp". Einn var lasinn þegar útidagurinn rann upp þannig að 8 fóru út með þremur leiðbeinendum, mér, Rúnari Óla og Atla Pálssyni. Tveir þeir síðarnefndu fóru með sína menn í Múlafjallið en ég fór með mína nemendur í Kjósarskarðið.
Markmið námskeiðsins var að gera nemendurna sjálfbjarga og hæfari til þess að stunda íþróttina á hættulítinn hátt. Byrjað var í klifurtækni og ef vel gekk leiddu við öruggar aðstæður.
Í mínu tilviki kom ég fyrir línu í miðjum lóðréttum fossi þar sem klifurtæknin var æfð, komið fyrir skrúfum og fleira skemmtilegt. Síðan var 3° foss farinn í þremur stuttum spönum. Gekk leiðsla nemendanna vel en fyrirfram var komið upp þéttum tryggingum í brattasta hlutanum.
Kv. Leifur“