Borði

Aðalfundurinn nálgast

Á aðalfundi 2007 urðu þó nokkrar mannabreytingar í stjórn ÍSALP. Þau sem komu ný inn í stjórn voru: Freyr Ingi Björnsson, Formaður Ágúst Kristján Steinarrsson Skarphéðinn Halldórsson Smári Stefánsson Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir Þeir sem fyrir voru, voru Viðar Helgason Þorvaldur Þórsson


mynd: Ísalp

Ljóst er að 4 sæti eru laus á aðalfundinum, sæti Ágústar, Smára, Sveinborgar og Þorvaldar.

Ágúst og Þorvaldur hafa tekið þá ákvörðun að láta hér staðar numið og gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.

Smári og Sveinborg ætla hins vegar að bjóða fram krafta sína áfram fái þau umboð félagsmanna til þess.

Óskað er hér með eftir framboðum til stjórnarsetu.

framboð sendist til stjorn(hjá)isalp.is