
Skrifað af: Skarphéðinn Halldórsson Þriðjudagur, 11. desember 2007 14:36

Þegar ákveðið var að endurvekja útgáfu ársritsins síðastliðið vor var og stefnt að því að koma útgáfumálum í fastari skorður en verið hafði um langt skeið. Miðað er við að vinna við ársritin hefjist síðla árs og að ársritið sjálft komu út snemma árið eftir.
Forsenda þess að e-ð sé varið í ársritin er sú að meðlimir klúbbsins hafi e-ð til þeirra að leggja. Eins tápmiklir og frískir meðlimir ritnefndar eru, og skemmtilegir í eigin augum, þá er óvíst að allir séu því sammála. Sögur af þeirra sigrum og sorgum geta því orðið leiðinlegt lesefni til lengdar.
Ritnefnd skorar því á alla lipra penna innan klúbbsins að senda okkur greinar, pistla, féttir og frásagnir. Ekki skiptir höfuðmáli að viðkomandi efni hafi átt sér stað á liðnu ári, skemmtilegar sögur uppúr skúffunum eru ævinlega vel þegnar.
Til að hægt sé að koma ritinu út á tilsettum tíma miðar ritnefnd við að hafa fengið allt efni í hendurnar fyrir lok janúar 2008. Vinsamlega sendið efnið á póstfangið
skabbi(hjá)gmail.com
eða
hraundrangi(hjá)gmail.com
Með von um góðar viðtökur,
Ritnefnd