
Skrifað af: Smári Stefánsson Föstudagur, 07. desember 2007 09:32

...nýtt borð, viðarvörn fyrir borð og kamar, bolta og akkeri.
Á síðunni er birtur listi yfir þá sem greiddu gjaldið, og uppgötvaði undirritaður, við lestur listans, að í annríki sumarsins hafði hann steingleymt að greiða gjaldið. Það var því ekki annað að gera en að kíkja í heimabankann og borga.
Allir Ísalpfélagar og aðrir sem kíktu á Hnappavelli í sumar eru hvattir til að láta sitt ekki eftir liggja og greiða kamargjaldið, "skitnar" 500 kr. til að leggja sitt að mörkum til að Klifurfélag Reykjavíkur geti haldið áfram frábærri uppbyggingu á Hnappavöllum sem kemur öllum klettaklifrurum til góða.
Leggið inn á reikning klifurfélags Reykjavíkur:
kt. 4103023810,
re. 0111-05-274410,
skýring greiðslu: KAMAR