Borði

Vegna fundar um Tindfjallaskála

Kosningum um sölu Tindfjallaskálans hefur verið frestað fram að næsta aðalfundi. Miðvikudaginn 5. des. verður haldinn opinn kynningarfundur um málefni skálans.


mynd: Ísalp

Hugmyndir stjórnar Ísalp um sölu á Tindfjallaskálanum til FÍ hafa vakið mikil og sterk viðbrögð. Það kom fljótlega í ljós að mörgum félagsmönnum fannst stjórnin fara óþarflega greitt í þessu máli. Það hefur því verið ákveðið að fella kosningu um málið af dagskrá fundarins þann 5. des. næstkomandi. Fundurinn verður því opinn umræðufundur um Tindfjallaskálann í nútíð og framtíð. Stjórnin mun kynna hugmyndir um sæluna yfirr félögum og hvetur stjórnin alla sem láta sig málið varða að mæta á svæðið og leggja umræðunni lið. Kosning um sölu Tindfjallaskálans verður tekin fyrir á næsta aðalfundi.

Stjórnin