
Skrifað af: Skarphéðinn Halldórsson Föstudagur, 23. nóvember 2007 13:24

Þeir sem lagt hafa leið sína inn í Tindfjöll nýlega hafa ugglaust tekið eftir því að töluverðra endurbóta er þörf á þessu fyrverandi flaggskipi Ísalp. Skálinn var byggður á sjötta áratug síðustu aldar af Fjallamönnum sem þá voru og hétu en komst í umsjón og eigu Ísalp við stofnun þess. Á fyrstu árum starfsins var skálinn burðarstólpi í starfsemi klúbbsins og í mikilli notkun. Hin síðari ár hefur dregið jafnt og þétt úr notkun hans. Eflaust helst minnkandi notkun að e-u leyti í hendur við breyttar áherslur klúbbsins, auk þess sem nauðsynlegt er að gera ákveðnar endurbætur á skálanum.
Síðastliðið vor ákvað núverandi stjórn Ísalp að taka málefni Tindfjallaskála til skoðunar. Ljóst var að fara þyrfti út í töluverða vinnu til að halda skálanum í viðunandi ástandi. Í ljósi þess að Ferðafélag Ísland hefur undanfarin ár séð um útleigu á skálanum fyrir hönd Ísalp var ákveðið að leyta eftir samstarfi við þá við endurbætur á skálanum. Fljótlega kom í ljós að FÍ hafði ekki áhuga á að fara út í vinnu í samstarfi við Ísalp heldur vildu þeir kaupa af okkur skálann og sjá í kjölfarið alfarið um viðhald hans og rekstur. Eftir töluverða umhugsun ákvað stjórn Ísalp að ganga til viðræðna um sölu á skálanum, með þeim fyrirvara að félagsmenn klúbbsins samþykki söluna.
Niðurstaða viðræðna í haust varð sú að FÍ býður Ísalp hálfa milljón króna fyrir Tindfjallaskála í núverandi ástandi. Aðkoma Ísalp að skálanum verður þó enn viðurkennd, meðal annars í því að félagar í klúbbnum fá afslátt af gistingu í skálanum og forgang í hann yfir vetrarmánuðina.
Af þessu tilefni boðar stjórn Ísalp til félagafundar miðvikudaginn 5. desember klukkan 20:00 í Skútuvoginum. Tillaga þess efnis að fyrirliggjandi tilboði í skálann verði tekið verður lögð fyrir fundinn. Verði þessi tillaga samþykkt verður gengið frá sölu Tindfjallaskála til Ferðafélags Íslands.