Borði

Ekki fara í klifurhúsið á laugardaginn

Á laugardaginn kemur (17.11) verður lokað í Klifurhúsinu vegna vinnu við uppsetningu leiða fyrir mótið á sunnudaginn (18.11)


mynd: Kristín Martha

ÍSALP hvetur að sjálfsögðu alla til að mæta og taka þátt í mótinu sem er annað í röðinni í fjögurra móta röð klifurhússins. Bestu þrjú mót vetrarins gilda þannig að það er ekki of seint að mæta núna ef ef einhver stefnir að því að verða Íslandsmeistari í grjótglímu... Svo má að sjálfsögðu mæta bara til að vera með þó maður hafi engan áhuga á að vinna.

Eftir mótið verður áhugaverð myndasýning frá ferð nokkurra Íslendinga til Fontaine Bleau.

Mótið er, eins og áður hefur komið fram, á sunnudaginn og hefst keppni kl. 14:00 fyrir 12 ára og yngri en kl. 15:00 fyrir þá sem eldri eru.

sem sagt Enginn í klifurhúsið á laugardaginn!
Allir í klifurhúsið á sunnudaginn!!